Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
20.8.2008 | 17:56
Fjölorka
Sat fund í dag í iðnaðarráðuneytinu um fjölorku. Hugmyndin er að þróa nýja orkugjafa til að knýja farartæki. Bréf hafði borist frá iðnaðarráðherra í sumar og leitað eftir viðbrögðum frá sveitarfélögum um verkefnið. Í kjölfarið var boðað til þessa fundar. Ein fjölorkustöð hefur verið opnuð í Reykjavík á vegum N1 og önnur er í uppsetningu í Hafnarfirði. Sú verður opnuð um miðjan september.
Áhugaverð skýrsla um þessi mál eru á vef iðnaðarráðuneytisins.
Fyrstu drög að samstarfsyfirlýsingu ráðuneytisins og bæjarfélaganna voru lögð fram og rædd. Í kjölfar fundarins verður hún yfirfarinn og send til umfjöllunar í sveitarstjórnum. Stefnt að undirritun um miðjan september. Í hnotskurn fjallar yfirlýsingin um að sveitarfélögin og ráðuneytið lýsa yfir vilja til að stuðla að aukinni notkun innlendra orkugjafa í samgöngum og koma á fjölorkuhring um landið í samvinnu við fyrirtæki sem sérhæfa sig í nýorku og við dreifingaraðila.
Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar sat fundinn. Hann fór yfir þá orkugjafa sem í boði eru, s.s. metan, metanól, vetni rafmagn og lífrænt eldsneyti. Sigurður Friðleifsson hjá Orkusetri upplýsti að notkun metans sem eldsneyti á fjölskyldubíl gæti lækkað útgjöld heimili um 150 þús árlega.
Ég fagna þessu frumkvæði iðnaðaráðherra og tel að sveitarfélagið hér eigi að taka þessu opnum örmum og vera hluti af þessum fyrstu skrefum í innleiðingu á notkun innlendra orkugjafa til að knýja bíla, flugvéla og báta í framtíðinni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2008 | 21:10
Þriðjudagur
Skútumálið leystist í dag. Sátt náðist um greiðslu hafnagjalda og vöktunar á skútunni. Hafnarstjórn kom saman í hádeginu og ræddi m.a. skútumálið. Mest þó um framkvæmdir, bæði við Bátstanga og Álaugarey. Endurbætur á Álaugareyjarbryggju eru einhverjar mestu framkvæmdir við bryggjur hér í langan tíma. Það er einnig mikilvægt að ljúka við frágang í kringum Bátstanga en aðstæður eru ekki nægjanlega góðar til að flytja nætur frá bryggjunni inn í netagerð. Rætt var um lausnir og ákveðið að leita eftir samráði við netagerðina og útgerðaraðila áður en ráðist verði í lokafrágang á svæðinu. Það væri vont að fara í aðgerðir sem ekki væru fullnægjandi og þyrfti að vinna upp á nýtt. Einnig var ákveðið að auglýsa eftir starfsmanni til hinnar nýju stofnunar sem varð til við sameiningu hafnarinnar, veitnanna og áhaldahúss. Starfsmönnum var falið að gera tillögu að nafni á þessa einingu og allar ábendingar eru vel þegnar.
Síðdegis komu skólastjórar til fundar í ráðhúsið ásamt nefnd um stefnu í húsnæðismálum. Setið var á rökstólum um hvað þurfi að lagfæra og bæta við í húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar þegar Nesjaskóli flyst á Höfn. Rætt var um skólastofur, staðsetningu lausra kennslustofa, starfsmannaaðstöðu, skólalóð, matsal, aðgengi fyrir fatlaða og íþróttaaðstöðu. Fulltrúi frá Verkfræðiþjónustunni sat fundinn og mun í framhaldi af honum gera tillögur um úrbætur og lagfæringar sem ræddar voru á fundinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2008 | 22:58
Mánudagur
Það eru mörg mál upp á borðum mínum þessa dagana, stór og smá. Sem betur fer er nægjanleg góður friður og yfirvegun í umhverfi ráðhússins til þess að hægt sé að einbeita sér að margvíslegum verkefnum. Ég sé betur og betur hversu miklu skipti að stöðugleiki ríki í stjórnmálum. Það er bagalegt fyrir öll samfélög að lenda í álíka atburðarrás og Reykjavík. Það skapar glundroða í öllu starfi og hætta á að ekki sé hægt að taka á málum og undirbúa önnur.
Mér finnst meiri ólga í stjórnmálum á Íslandi núna en um langt skeið. Ekki aðeins í borgarmálum heldur líka í ríkisstjórninni. Þar er fólk það reynt að átökin koma ekki á yfirborðið en ég er þess fullviss að ýmislegt gengur á að tjaldabaki. Mér er til dæmis spurn yfir því af hverju heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti hafa ekki komist að samkomulagi um rekstur hjúkrunarrýma. Það er auðvitað óþolandi staða og bitnar á samningaviðleitni okkar um nýjan samning um heilsugæslu og öldrunarþjónustu.
Atvinnumálanefnd kom saman í hádeginu og fjallaði um fjallskil, atvinnu- og rannsóknarsjóð og stöðu í atvinnumálum. Bæjarráð hittist kl. 16.00 og sat til 18.20. Gagnaver kom til umræðu og þar var hvatt til þess að við þrýstum á stjórnvöld að halda okkur inn í myndinni þegar kemur að uppsetningu gagnavera á Íslandi. Nú hillir undir að skýrsla um möguleika á vatnsútflutni héðan úr héraðinu verði birt og kynnt. Þá finnst mér upplagt að taka næst til skoðunar uppsetningu gagnavers á svæðinu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2008 | 20:50
Föstudagur
Birgir Árnason hinn nýi verkstjóri á tækni- og umhverfissviði kom til mín í dag. Við ræddum framkvæmdir við höfnina og fleira því tengdu. Mest ræddum við saman um hlutverk áhaldahúss, umhverfi bæjarins og samspil hafnarinnar, veitnanna og áhaldahússins. Við ætlum okkur að taka upp þráðinn þegar haustar meira og móta stefnu og starfsvið þessarar nýju einingar.
Ræddi við Ólaf Sigurðsson í Svínafelli um málefni sundlaugar í Öræfum og sorpeyðingu í sveitinni. Einnig heyrði ég í Þorsteini á Skálafelli sem sagði frá hugmyndum sínum um aðgengi á Heinabergssvæðinu. Mér þótti innlegg hans til þessara mála gott og í kjölfarið ritaði ég bréf til þeirra aðila sem þurfa að koma að ákvörðun um uppbyggingu vegslóða á þessu svæði. Mikilvægt er að koma þeim í lag fyrir haustið.
Skólamál verða fyrirferðarmikil á komandi vetri. Ljóst er að breytingar verða á skólahaldi í Nesjum á næstu misserum. Það eru blendnar tilfinningar sem bærast með manni í þeim þankagangi öllum. Gekk í skóla í Nesjum alla mína grunnskólagöngu og á góðar minningar um samnemendur og starfsfólk. Hlutverk þeirra sem fara fyrir bæjarmálum er að nýta fjármuni sem best og stuðla að öflugu skólastarfi. Mér heyrist að mikill stuðningur sé úr skólasamfélaginu að flýta frekar flutningi skólans úr Nesjum á Höfn. Það léttir lund mína óneitanlega að vita af húsnæði Nesjaskóla í góðum höndum. Það er gott fyrir sveitina að fólk hér af svæðinu eignaðist Nesjaskóla og mun efla þar starfsemi og halda þessu mikla húsnæði við. Tel að til framtíðar muni rekstur ferðaþjónustu í þessu húsnæði efla sveitina ekki síður en skólahald. Mikilvægast af öllu er að taka þetta stóra skref í sem mestri samvinnu við skólasamfélagið og foreldra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2008 | 22:40
Fimmtudagur
Í morgun hitti ég Regínu Hreinsdóttur, þjóðgarðsvörð í Skaftafelli og Þórð Ólafsson, framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs. Við fórum á Heinabergssvæðið og ég lagði áherslu á að slóðinn þar inn eftir verði lagaður í samvinnu sveitarfélags og þjóðgarðsins. Svæðið er víðfeðmt og fallegt og ljóst að vanda þarf mjög til allrar uppbyggingar á svæðinu. Tel að þarna megi byggja upp skemmtilegt útivistarsvæði og áningarstaði fyrir ferðamenn án þess að öll önnur not skerðist, þ.m.t. veiðar og sauðfjárbeit. Að lokinni skoðunarferð fórum við í ráðhúsið og gerðum tillögu að starfslýsingum framkvæmdastjóra, þjóðgarðsvarða, landvarða og sérfræðinga sem vinna fyrir þjóðgarðinn. Þessi mál voru ekki nægjanlega skýr áður og lögin ekki tæmandi um hlutverk hvers aðila. Þetta snertir líka vald og áhrif þjóðgarðsvarða og framkvæmdastjóra. Mín skoðun er sú að þjóðgarðsverðir eigi að vera með yfirumsjón með sínu svæði eftir þeim ramma sem stjórnin setur um fjármagn og framkvæmdir en framkvæmdastjóri sé brú á milli þjóðgarðsvarða, stjórnar og ríkisvaldsins. Ég held að við þrjú höfum náð góðri lendingu sem við kynnum fyrir stjórn þjóðgarðsins þegar hún kemur saman í byrjun september.
Bæjarstjórnarfundur hófst klukkan 16.00 og stóð til kl. 18.30. Hæst bar að tillögur stýrihóps um mótun fjölskyldustefnu voru samþykktar. Þær gera ráð fyrir umtalsverðri lækkun leikskólagjalda, gjalda vegna lengdrar viðveru og aukin systkinaafslátt. Þessar tillögur koma til framkvæmda þann 1. september nk. en einnig var samþykkt að styrkja hvert barn um 10.000 krónur til að ýta undir iðkun íþrótta og tómstunda hvers konar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2008 | 21:33
Miðvikudagur
Fór í morgun til Reykjavíkur á fundi í stjórnarráði í tengslum við fjárlög 2009. Lagði áherslu á starfstöð Siglingastofnunar, samgöngumál, náttúrustofu, Vatnajökulsþjóðgarð og fleira. Óneitanlega barst stjórnmálaástand í landinu á góma. Það hriktir enn og aftur í stoðum áðhúss Reykjavíkur og engu hægt að spá fyrir um atburðarrásina í borginni. Fundaði síðar um daginn með ráðgjöfum um skipulag og stjórnun sveitarfélaga. Í kvöld kom í heimsókn til Hafnar danskur prófessor í arkitektúr. Hann hefur tengsl við Glámu Kím sem hefur unnið mörg verkefni hér höfn. Prófessorin hefur sérstakan áhuga á varðveislu gamalla húsa og vill kynna sér Hafnarvík - Heppu verkefnið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.8.2008 | 21:31
Þriðjudagur
Í morgun prentaði ég út þrjú rit sem nýlega hafa komið út um sveitarstjórnarmál í Evrópu. Hið fyrsta fjallar um samanburð á valdi og hlutverki sveitarfélaga í Evrópu og virðist mjög fræðandi. Á eftir að kynna mér það betur en það telur hátt á annað hundruð síður. Rit númer tvö er um breytingar á sveitarstjórnarstiginu og aukin verkefnaflutning til sveitarfélaga í Evrópu. Þriðja ritið fjallar um einkarekstur og einkavæðingu í opinberum rekstri.
Fór yfir hugmyndir um heilsueflingu meðal starfsmanna sveitarfélagsins. Hef mikla trú á að með fræðslu um gildi hreyfingar, hvatningu og hollt matarræði meigi minka streitu, auka vellíðan og úthald á vinnustöðum. Tel þess vegna brýnt að sveitarfélagið ýti undir allt þetta meðal sinna starfsmanna.
Átti langt símtal við verkfræðinga sveitarfélagsins um útboð og skipulag vegna knattspyrnuhúss en hvort tveggja er að komast í höfn, um húsnæði grunnskólans sem þarf að lagfæra og bæta, um sundlaugina og tengibyggingu á milli nýrar sundlaugar og Heppuskóla. Einnig eru einungis fáeinar vikur þar til gatnagerð og jarðvegsundirbúningur á Leirusvæði verður boðinn út.
Eftir hádegi var langur fundur með framkvæmdastjórum sveitarfélagsins. Undirbjuggum bæjarstjórnarfund á fimmtudaginn og fjárhagsáætlunargerð.
Vann í hugmyndum um hvernig best sé að tryggja Hafnarvík Heppu verkefninu sem bestan framgang. Átti gott spjall við Björgu forstöðukonu Menningarmiðstöðvar og Árna Kjartansson arkitekt. Ef verkefnið á að komast af hinu skrifuðu blöðum og í framkvæmd þarf að laða að áhuga- og fagfólk og finna réttan starfsmanninn til að fóstra allar þær hugmyndir sem verkefnið hefur nú þegar leitt af sér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2008 | 19:50
Mánudagur
Fundaði með Sigríði Kristinsdóttur hjá Regula í morgun. Rætt um björgunarlaun vegna strands Axels en fyrirhugaður er fundur lögfræðinga sveitarfélagsins og tryggingarfélags skipsins í lok ágúst. Stefnt er að sátt í málinu sem ég teldi farsælustu lausnina. Einnig fórum við yfir Hafnarbraut 40 en eins og kunnugt er hefur eigandi hússins leitað til sveitarfélagsins vegna sigs á húsinu í tengslum við sundlaugarframkvæmdir. Það er mál sem best væri að leiða til lykta skjótt og vel. Einnig ræddum við um lóðarsamninga hjá þeim sem eiga hús á svæðinu á milli Vegagerðar og Garðshóls. Rýma þarf svæðið þegar framkvæmdir hefjast vegna knattspyrnuhússins. Skoðaði gögn um Austurhól og ræddi við ábúanda þar. Stefni að því að teikna upp landamerki á jörðinni enda mikilvægt að hafa það á hreinu hvað tilheyrir jörðinni. Afsalið er afdráttarlaust um það að sveitarfélagið á jörðina alla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2008 | 16:45
Föstudagur
Fór yfir rekstur Grunnskóla Hornafjarðar með Stefáni Ólafssyni. Fjöldi kennslustunda, stærð bekkjardeilda og samsetning starfsliðs ræður flestu um fjárhag skólans. Fór yfir launaþróun á heilsugæslunni síðustu ár til að undirbúa næstu lotu í samningum um heilbrigðismál við ríkið. Bandaríski sendiherran á Íslandi kom í heimsókn og margt bar á góma í spjalli okkar. Við ræddum atvinnulíf á landsbyggðinni, tengsl Íslands og Bandaríkjanna og breytingar í náttúrunni í tengslum við hlýnandi loftslag. Bandarísku forsetakosningarnar báru á góma og augljóst að hún er mjög spennt yfir þeim slag sem framundan er. Ómögulegt að spá um úrslit að hennar mati og í uppsiglingu eru tvísínustu kosningar í Bandaríkjunum síðan Clinton tókst á við Bush eldri. Hún sagði að ungt fólk í Bandaríkjunum áhugasamari um stjórnmál nú en um langt skeið. Stafar það af stöðu efnahagsmála og aðgerðum Bandaríkjanna í Írak.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2008 | 19:47
Fimmtudagur
Fundað var í bæjarráði og dagskrá með lengsta móti. Setið var við frá níu til hádegis. Mest var tekist á um heilbrigðismál en einnig rætt um afskipti mín af framkvæmdum við Svínafell. Afskipti mín þar fólust eingöngu í að benda á að engin tilkynning hefði borist sveitarfélaginu um þessar framkvæmdir sem væri nauðsynlegt til að geta tekið tillit til umfangs hennar og hvort aðrir aðilar þyrftu að fá að fjalla um hana áður en hafist yrði handa, s.s. landgræðslan. Afskipti mín má ekki túlka þannig að ég sé á móti framkvæmdinni heldur áminning til allra að áður en ráðist er í framkvæmdir er nauðsynlegt að kynna hana fyrir sveitarfélaginu.
Það hefði til dæmis verið mun heppilegra - svo vægt sé til orða tekið - að framkvæmdaraðilar á Borgarhafnarfjalli hefðu gert sér grein fyrir hvernig þeir ætluðu að haga flutningum á tækjum og tólum að byggingarstað áður en þeir hófust handa. Fleiri dæmi á undanförnum árum mætti nefna um umdeildar framkvæmdir sem voru gerðar án þess að tekið væri tillit til sjónarmiða sveitarfélaga eða eigenda lands.
Framkvæmdastjóri heilbrigðisstofnunar kom til fundar í ráðhúsinu þar sem við fórum yfir fjármál stofnunarinnar og læknamál.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 15.2.2010 Gott í bili
- 12.2.2010 Menningarverðlaun
- 11.2.2010 Eystrahorn og Ríki Vatnajökuls
- 10.2.2010 Dagbók hafnarinnar og sjávarfallavirkjun
- 9.2.2010 Þriðjudagur
- 8.2.2010 Mánudagur
- 4.2.2010 Fimmtudagur
- 3.2.2010 Miðvikudagur
- 2.2.2010 Þriðjudagur
- 1.2.2010 Mánudagur
Eldri færslur
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Bloggvinir
-
Árni Rúnar Þorvaldsson
-
Daði Hrafnkelsson
-
Kári Sölmundarson
-
Baldur Kristjánsson
-
Guðlaug Úlfarsdóttir
-
Heiðar Sigurðsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Friðrik Þór Ingvaldsson
-
Skúli Freyr Br.
-
Helgi Seljan
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Bleika Eldingin
-
Andri Heiðar Kristinsson
-
Vestfirðir
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Bjarni Harðarson
-
Sara Björg Sigurðardóttir
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Kristín Guðrún Gestsdóttir
-
Andrés Skúlason
-
O. Marwin
-
Ása Richardsdóttir
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Elliði Vignisson
-
Hallur Magnússon
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Róslín A. Valdemarsdóttir
-
S. Einar Sigurðsson
Tenglar
Rúnturinn
Heimasíður sem ég heimsæki a.m.k. vikulega, sumar daglega


