15.2.2010 | 21:53
Gott í bili
Fyrstu skrifin birtust á þessa síðu þann 11. febrúar árið 2007. Nú finnst mér rétt að láta staðar numið - í bili að minnsta kosti. Það styttist í sveitarstjórnarkosningar og framboðin eru farin að undirbúa sig.
Ég þakka öllum sem hafa lesið þessi skrif mín og vona að þau hafi verið til gagns og upplýsandi um helstu viðfangsefni mín frá degi til dags.
Bloggar | Breytt 16.2.2010 kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
12.2.2010 | 17:19
Menningarverðlaun
Kristín Jónsdóttir bóndi og skáld á Hlíð í Lóni hlaut menningarverðlaun Hornafjarðar nú í dag. Ljóðabók hennar fékk frábærar viðtökur og er uppseld. Sagt er að margi bíði þess að nýtt upplag komi úr prentun. Hún var valinn úr hópi fólks sem hafði lagt að baki mikið verk s.s. eins og Halldór kokkur Halldórsson.
Helgi Björnsson, jöklafræðingur og mikill vinur svæðisins, hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin í fyrra dag og Kristín Guðnadóttir var tilnefnd til sömu verðlauna fyrir bók sína um Svavar Guðnason.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2010 | 19:21
Eystrahorn og Ríki Vatnajökuls
Eystrahorn hefur komið út um nokkurt skeið á nýjan leik sem mér finnst afar ánægjulegt. Eins og ég sagði á bæjarstjórnarfundi í haust að þá hefur blaðið verið góður vettvangur fyrir skoðanaskipti og ábendingar um það sem betur má fara hér í samfélaginu og í rekstri sveitarfélagsins. Þannig var umfjöllun í dag um vinnuskólann sem mikilvægt er að hlúa vel að. Á Ríki Vatnajökuls.is birtast daglega fréttir og umfjallanir um ýmis mál hér í samfélaginu sem rata oft á tíðum í aðra fjölmiðla. Sú jákvæða ímynd sem svæðið hefur skapað sér er meðal annars að þakka tíðum fréttaskrifum. Á síðunni hafa líka birst margar greinar frá íbúum og vefurinn er duglegur að birta umfjallanir um starfsemi stofnana og fyrirtækja á staðnum sem upplýsir íbúa um þá þjónustu sem í boði er.
Ég veit um fáa aðra staði á Íslandi, ef nokkurn, sem geta státað af því að eiga góðan vefmiðil og gott héraðsfréttablað.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.2.2010 | 23:59
Dagbók hafnarinnar og sjávarfallavirkjun
Hafnarverðir rita í dagbók um það helsta sem gerist á höfninni á slóðinni http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/upplysingar/hornafjardarhofn/dagbok-hafnarinnar/
Undanfarna daga er búið að vera mikið að gera hjá þeim eins og lesa má í dagbókinni. Ég vil nota tækifærið og hrósa þeim fyrir framtakið.
Í dag tók Ólöf Rós Káradóttir verkfræðingur á Verkís á móti styrk frá Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar til að rannsaka möguleika á virkjun sjávarfalla í Hornafirði. Verkefnið er tilkomið vegna þess að við fórum af stað snemma árs 2009 með að kanna kosti til orkunýtingar á svæðinu. Margt var rætt, en snemma var farið að skoða strauma innan Hornafjarðar og sérstaklega Mikleyjarálinn. Nýsköpunarmiðstöð Íslands var mikilvægur þáttakandi í þeirri hugmyndavinnu og er aðili að verkefninu sem veittur var styrkur í dag. Á seinni stigum höfum við einnig skoðað Melálinn sem Sigurður Guðmundsson starfsmaður hafnarinnar dýptarmældi fyrir skömmu og eins höfum við velt fyrir okkur möguleikum á sjávarfallavirkjun fyrir utan Ós. Þetta er auðvitað framtíðarmál en mikilvægt er að kortleggja möguleikana og kanna kosti þess að virkja sjávarföll og strauma því tækni fleytir fram. Samstarfið við Verkís kom upp úr samtölum við Gísla Viggóson á Siglingastofnun en í viðræðum við hann lögðum við grunn að öðru verkefni sem hrint verður af stokkunum í ár, að setja upp sjávarfallalíkan innan og utan Hornafjarðarós með það fyrir augum að bæta innsiglinguna um Hornafjarðarós og sérstaklega Grynnslin. Hornafjarðarhöfn lagði til 2 m.kr. á fjárhagsáætlun ársins 2010 í það verkefni. Á fundi sem ég og Gísli áttum með starfsmönnum Verkís var ákveðið að setja af virkjunarverkefnið af stað.
Bloggar | Breytt 11.2.2010 kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2010 | 17:29
Þriðjudagur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2010 | 22:51
Mánudagur
Á föstudaginn fundaði ég ásamt Björgu í Menningarmiðstöðinni og Ara Þorsteinssyni með framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar og förstöðumanni hönnunardeildar Listaháskóla Íslands. Í framhaldi ræddum við þrjú um áframhald á Hafnarvík-Heppu verkefninu. Fundaði síðdegis í Landsbanka Íslands.
Í dag fórum við framkvæmdastjórar yfir hugmyndir um sameiningu sveitarfélaga og ræddum starfsmannamál.
Eftir hádegi funduðum við Jóhann Morávek og Stefán Ólafsson um rekstur og húsnæði tónskólans og ákváðum að leggja grunn að stefnumótun fyrir framtíð skólans. Talandi um tónlist að þá hitti ég Júlíus Sigfússon tónlistarmann sem ásamt félögum sínum æfir í aðstöðunni sem útbúinn var í kjallara vöruhússins gamla. Hann var ánægður með aðstöðuna.
Síðdegis fór ég yfir nokkur mál með Reyni Arnarsyni og Árna Þorvaldssyni. Við hittumst reglulega til að fara yfir verkefni líðandi stundar og spá í þjóðmálin og hvernig þau geta haft áhrif á okkur hér á Hornafirði.
Klukkan 20 í kvöld var opin fundur í Mánagarði um verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Drög voru send á hagsmunaaðila fyrir skömmum og fundur verður í Hofgarði á miðvikudaginn. Að þessu ferli loknu verður farið yfir drögin af hálfu svæðisráðs þjóðgarðsins sem vísar þeim síðan til stjórnar. Yfirgripsmikil og vönduð vinna hjá ráðgjöfum og starfsmönnum garðsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2010 | 21:47
Fimmtudagur
Skýrsla um rekstur og afkomu hafna á Íslandi var birt í byrjun vikunnar. Þar kemur fram hversu reksturinn er erfiður víða og skuldir háar. Breytt löggjöf um hafnir auka enn frekar á vanda þeirra því með henni var öllum styrkjum ríkisins í framkvæmdir hætt. Ofan á þetta bætist að dregið hefur verulega úr sjóflutningum. Árið 2006 skiluðu einungis 9 hafnir rekstrarafgangi en hinar 36 voru reknar með tapi upp á 1,5 miljarð króna samtals. Í árslok 2008 námu skuldir hafna alls 14,1 miljarði. Nefndin, sem skipuð var af samgönguráðhera, leggur til að eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga verði falið að hafa sérstakt eftirlit með rekstri hafna og hún fái vald til að breyta gjaldskrá þeirra þannig að hafnir verði rekstrarhæfari. Í töflu í viðauka með skýrslunni kemur fram að frá árinu 1990 til 2008 hafa rekstrartekjur hafnarsjóðs Hornafjarðar aukist um 60,1% þegar tekið hefur verið tillit til verðlagshækkanna. Hækkunin á sér fyrst og fremst stað frá árunum 2000 - 2008 þegar rekstrartekjur hækka úr 75,9 miljónum í 119,4 miljónir. Að sama skapi hefur afkoman batnað og síðustu ár hefur höfnin alltaf skilað afgangi af rekstri.
Sjávarútvegur er mikilvægur hér og hafnarsjóður verður að halda áfram að byggja upp aðstöðum. Í ár verður Bræðslubryggja löguð, gengið frá umhverfi Álaugareyjarbryggju og malbikað á hafnarsvæðinu.
Bloggar | Breytt 5.2.2010 kl. 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2010 | 19:54
Miðvikudagur
Var á fundi með UMFÍ í morgun um hugmynd sem unnið hefur verið um nokkurt skeið. Ákveðið að taka saman greinargerð og leggja fyrir menntamálaráðuneytið. Síðdegis fundaði ég í samgöngu- og sveitastjórnaráðuneytinu um sameiningu sveitarfélaga. Á næstunni verður farið yfir málið í bæjarráði og bæjarstjórn og mikilvægt að vanda mjög umræðuna þannig að tekin verði stefna sem er að undangenginni yfirvegaðri skoðun á þeim kostum sem standa okkur til boða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2010 | 19:51
Þriðjudagur
Seinni partinn var spilað viðtal við mig á RÚV um niðurstöðu Vísbendingar um það sem kallað er "Draumasveitarfélagið". Á mælikvarða Vísbendingar skorar Sveitarfélagið Hornafjörður hátt. Mikilvægt er að átta sig á að slíkir mælikvarðar varpa engu heildstæðu ljósi á árangur af starfi sveitarfélaga. Það er þó ljóst af úttekt Vísbendingar að fjárhagurinn er traustur og það rímar vel við þá vissu sem við höfðum um rekstur, efnahag og sjóðstreymi sveitarfélagsins.
Viðtöl við fjölmiðla eru sjaldan spiluð eða birt óklipt. Þannig var svar mitt við þeirri spurningu fréttamannsins hvað skýri góða stöðu sveitarfélagsins klippt niður. Því miður var sneytt af þar sem ég hrósaði forstöðumönnum og bæjarstjórn fyrir ábyrga meðferð fjármuna og taldi það eina af tveimur megin ástæðum fyrir árangrinum. Hin er að atvinnuvegirnir standa nokkuð vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2010 | 22:52
Mánudagur
Í síðustu viku fundaði heilbrigðis- og öldrunarráð með eldri borgurum. Þau nefndu að vantaði upplýsingar um þjónustu við eldri borgara og ýmislegt sem varðar húsnæði í þjónusturými í Ekrunni. Bæjarráð fundaði í dag og vísaði m.a. þriggja ára áætlun til bæjarstjórnar.
Fyrsta loðnan barst að landi í gær. Mikið gleðiefi að gefinn hafi verið út kvóti. Loðnuveiðar hafa áhrif jákvæð áhrif á afkomu margra heimila, fyrirtækja og svo nýtur bæði hafnarsjóður og sveitarsjóður góðs af.
Bloggar | Breytt 2.2.2010 kl. 08:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 15.2.2010 Gott í bili
- 12.2.2010 Menningarverðlaun
- 11.2.2010 Eystrahorn og Ríki Vatnajökuls
- 10.2.2010 Dagbók hafnarinnar og sjávarfallavirkjun
- 9.2.2010 Þriðjudagur
- 8.2.2010 Mánudagur
- 4.2.2010 Fimmtudagur
- 3.2.2010 Miðvikudagur
- 2.2.2010 Þriðjudagur
- 1.2.2010 Mánudagur
Eldri færslur
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Bloggvinir
-
Árni Rúnar Þorvaldsson
-
Daði Hrafnkelsson
-
Kári Sölmundarson
-
Baldur Kristjánsson
-
Guðlaug Úlfarsdóttir
-
Heiðar Sigurðsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Friðrik Þór Ingvaldsson
-
Skúli Freyr Br.
-
Helgi Seljan
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Bleika Eldingin
-
Andri Heiðar Kristinsson
-
Vestfirðir
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Bjarni Harðarson
-
Sara Björg Sigurðardóttir
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Kristín Guðrún Gestsdóttir
-
Andrés Skúlason
-
O. Marwin
-
Ása Richardsdóttir
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Elliði Vignisson
-
Hallur Magnússon
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Róslín A. Valdemarsdóttir
-
S. Einar Sigurðsson
Tenglar
Rúnturinn
Heimasíður sem ég heimsæki a.m.k. vikulega, sumar daglega


